top of page
Services
About

Um Aðal Garðaþjónustuna

Aðal Garðaþjónustan býður upp á heildarlausnir þegar kemur að viðhaldi garðsins og ýmsu öðru sem tengist húsalóðum, en sinnir jafnt stórum sem smáum verkefnum. Gríðarlega fjölbreytt þjónusta er í boði.

Meðal verka sem Aðal Garðaþjónustan tekur að sér eru garðsláttur, beðahreinsanir, jarðvegsskipti, túnþökulagnir, hekkklippingar, trjáfellingar, hellulagnir og smíði sólpalla og skjólveggja, svo fátt eitt sé nefnt. Um er að ræða fjölskyldufyrirtæki sem hefur verið rekið af sömu fjölskyldu í yfir áratug. Starfsmenn okkar hafa mikla reynslu og þekkingu á þessu sviði, og við leggjum okkur alla fram við öll verkefni, sama hvort þau séu stór eða lítil.


Ef þú vilt fá faglega ráðgjöf vegna fyrirhugaðra framkvæmda, hafðu þá samband og við gerum tilboð í verkið, þér að kostnaðarlausu.


Við ákváðum í kreppunni að bjóða eldri borgurum og öryrkjum afslátt af allri garðvinnu þar sem margir sáu ekki fram á að geta keypt slíka þjónustu vegna afleiðinga kreppunnar. Við höfum haldið áfram að bjóða eldri borgurum og öryrkjum þennan afslátt. 


Aðal Garðaþjónustan leggur mikla áherslu á að veita viðskiptavinum sínum alltaf framúrskarandi þjónustu enda hafa ánægðir viðskiptavinir gert fyrirtækinu kleift að vaxa og dafna. Lítil yfirbygging veldur því jafnframt að fyrirtækið getur boðið þjónustu sína á hagstæðu verði.

Til að panta þjónustu eða fá frekari upplýsingar er gott að hringja í síma 770-0854 eða senda fyrirspurn á netfangið adal@adalgardathjonustan.is. Einnig er að finna upplýsingar og myndefni á Facebook-síðu Aðal Garðaþjónustunnar.

Testimonials

Hafið samband

Hringið í okkur í síma 7700-854 eða sendið okkur skilaboð 
  • White Facebook Icon

© 2023 by Aðal Garðaþjónustan.

Proudly created with Wix.com

bottom of page